a
| Amber Pie Uncut
Miðvikudagur, 27. júlí 2005
Fór og hitti þennan geggjaða Jim Rose í gær. Það eru auðvitað takmörk fyrir því hvað ég læt á prent þannig að það sem endaði á klippigólfinu kemur hér. Þeir sem hafa lesið DV í dag eða horft á Kvöldþátt Gumma á Sirkus í gær ættu að mestu að geta sleppt því að lesa þetta. Jim ætlar að koma með sitt innlegg í kynjabaráttuna með því að skera úr um það hvort er sterkara píkan eða typpið. Þetta verður gert með reipitogi. Amber er með hring í píkunni og í hana verður fest keðja en á hinum endanum verður drjólinn á einu fríkinu (Lifto). Og svo verður bara togað. Jim sagði mér einnig frá því að einn gaurinn í sirkusnum hefði misst typpið. Það bar þannig að að þau voru í myndatöku og þar dró hann innkaupakörfu með limnum. Ekki vildi betur til en svo að hann datt aftur fyrir sig, út af sviðinu, en karfan og typpið urðu eftir. Það var svo tekin húð af rassinum á honum og böllurinn græddur aftur á sinn stað. Þetta þýðir að því er Jim segir að í hvert skipti sem hann klórar sér í rassinum fái hann standpínu. "No matter what. His penis always gets a piece of ass!" Eins og ég hef þegar greint frá í Fréttablaðinu verður haug af smokkum dreift yfir áhorfendur á Broadway og sá sem fær bláa smokkinn má eyða klukkustund með Amber baksviðs. Ég spurði Jim hvað Amber myndi bjóða uppá og datt helst í hug að viðkomandi fengi að ræða við hana um bókmenntir og heimsmálin. "If you want you can do that. Some like anal, soma like vaginal and some like to be whipped." Ekki orð um það meir. Jim segist vera einn besti pókerspilari í Bandaríkjunum og hann eyðir fjórum mánuðum á ári í Las Vegas. "Ég hef ágætis tekjur upp úr þessu og ég vann til dæmis 11.000 dollara af Ben Affleck ekki alls fyrir löngu. Hann er ekki góður tapari og svipurinn á honum þegar hann sá spilin mín var eins og hann hefði fundið fingur fljótandi í Kókinu sínu. Ég hef líka náð 6.000 dollurum af Spider Man, honum Tobey Maguire." Myndatakan var auðvitað kapítuli út af fyrir sig. Ég afþakkaði brjóst á myndinni fyrir Fréttablaðið en DV þáði tútturnar á Amber. Fyrst var myndin fyrir "the conservative paper" tekin og Amber lét sér nægja að kokgleypa mjög, mjög langa blöðru. Rose vildi að hin drottningin, BB, sýndi aðeins í rassinn á sér og togaði stuttbuxurnar niður þegar honum fannst hún ekki sýna nógu mikið hold. Þegar það kom að DV vippaði Amber sér úr að ofan og þá spurði Jim hvort blaðið þyldi líka typpi. kWww H Juice Wholesale Acai Acai De Blog Category Curious Like Browsing off record í júlí 2005r Cheap Acai yWww H Juice Wholesale Acai Acai De Blog Category Curious Like Browsing off record í júlí 2005c o Acai |